Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Sumarvalið vekur lukku Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 08 júlí 2010 11:53

Ingimar Stefán og Gunnar Jarl að blása sápukúlurÍ sumar höfum við verið með Sumarval á miðvikudögum. Börnin velja á milli þess að smíða, sulla í sandkassanum, fara í leiki, mála, blása sápukúlur og gönguferðar. Í ár höfum við haft þann háttinn á að börnin mega flakka á milli svæða og hefur það vakið mikla lukku. Nokkrar myndir frá valinu í síðustu viku má sjá á sameiginlega myndasvæðinu.

 
Veraldarvinir komu í heimsókn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 05 júlí 2010 11:45

Veraldavinur í fótbolta með börnum á HagaborgÍ morgun komu nokkrir hressir strákar frá Veraldarvinum og léku við börnin í garðinum. Þetta vakti mikla lukku hjá þeim og góð tilbreyting. Strákarnir komu meðal annars frá Bandaríkjunum, Spáni, Suður-Kóreu, Þýskalandi, Kanada og Póllandi. Nánar má lesa um samtökin á síðunni http://www.wf.is/?l=1. Nokkar myndir eru á sameinginlegu myndasvæði barnanna.

 
Stolt börn við útskrift Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Fuglalandi
þriðjudagur, 01 júní 2010 13:20

Selma með hatt og rósSíðast liðinn föstudag var elsti árgangurinn útskrifaður frá Hagaborg. Börnin mættu prúðbúin í salinn þar sem foreldrar og aðrir aðstandendur biðu spenntir. Fyrst söng hópurinn nokkur lög áður en útskriftin sjálf fór fram. Eftir að hvert og eitt fékk skjal, rós og hatt á höfuðið voru aðstandendum boðið inn á deild í kaffi og meðlæti. Þessi athöfn er ávallt hátíðleg og mátti sjá mörg bros og eitt og eitt tár í augum. Myndir frá athöfinni eru á myndasvæði Fuglalands.

Lesa meira...
 
Arfinn reyttur, hoppað og grillað á Hagaborg Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá foreldrafélaginu
fimmtudagur, 27 maí 2010 10:12

Björn Darri í garðverkunumÍ gær stóð foreldrafélag Hagaborgar fyrir sumarhreinsunarhátíð. Foreldrar mættu með góða skapið og eitthvað af garðverkfærum. Hver deild fékk úthlutað ákveðnu svæði til að hreinsa. Gaman var að sjá börn og fullorðna taka höndum saman og gera garðinn  fínan. Foreldrafélagið bauð upp á hoppukastala og vakti hann geysimikla lukku. Foreldrar komu með pylsur og brauð og voru tveir galvaskir feður sem stóðu við grillið. Hópmyndtaka var af börnum og foreldum og á eftir stjórnaði Svava María fjöldasöng. Veðrið var eins og best varð á kosið og voru allir glaðir og kátir í lok hátíðarinnar. Myndir frá hátíðinni má sjá á myndasvæðinu undir sameiginlegum myndum.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 10

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hagaborg | Fornhagi 8, 107 Reykjavík | s: 551 0268 / 552 0095 | Póstur | Viðburðir | Fréttir