|
Þegar barn hefur leikskólagöngu í Hagaborg eru foreldrar þess oftast búnir að skoða leikskólann og fá helstu upplýsingar áður en þeir staðfesta val sitt á leikskóla og er það vel. Við í Hagaborg leggjum mikla áherslu á góð og gefandi samskipti við foreldra og að þeim er grunnurinn lagður í upphafi leikskólagöngunnar. Góð aðlögun barns að leikskóla er mjög mikilvæg og því er mikið lagt upp úr henni og góðu samkomulagi við foreldra þar um. Þegar barn byrjar í Hagaborg er farið eftir viðmiðunarskipulagi sem gildir fyrir ímyndað meðalbarn, en vert er að minna á að meðalbarn er ekki til í raun! Reyndin er þó sú að það er oftast hæfilegt að gera ráð fyrir einni viku í aðlögun yngri barna, foreldrar þurfa því að vera við því búnir að vera meira og minna með barninu þessa aðlögunarviku.
Alúð, traust og umhyggja eru lykilorð aðlögunar.
Hér gefur að líta viðmiðun aðlögunar í Hagaborg.
Foreldrasamstarf.
Markmið okkar er að foreldrar verði ánægðir með val sitt á leikskóla fyrir börnin sín og að samstarf foreldra og starfsfólks byggist á gagnkvæmu trausti og virðingu, þannig að samskiptin verði óþvinguð og eðlileg.
Foreldrafundir eru haldnir fyrir hverja deild í september/október. Þeir eru síðdegis, kl. 16:30-17:30 og í boði er að börnin séu í umsjá starfsmanna annarra deilda á meðan. Á þessum fundum er dagskipulagið og starfsemin framundan kynnt, sagt frá foreldrafélaginu og kosið í deildarráð fyrir hverja deild. Ekki síst eru þessir fundir vettvangur skoðanaskipta og umræðna.
Foreldraviðtöl, sem eru viðtöl við deildarstjóra eða leikskólakennara barnsins, eru eitt á haustönn og annað á vorönn. Að auki eru viðtöl höfð eftir þörfum, hvort heldur að frumkvæði foreldraeða starfsfólks.
Leikskólastjóri er að sjálfsögðu alltaf reiðubúinn til viðræðu við foreldra.
|