Hagaborg er 5 deilda leikskóli. Deildirnar eru aldursskiptar, en nokkuð
breytilegt er milli ára hve gömul börnin eru á hverri deild. Á elstu
deildunum, Fiskalandi og Fuglalandi, hafa að jafnaði verið tveir elstu
árgangarnir. Hve ung börnin koma í leikskólann fer eftir ásókn, en
eldri hafa forgang umfram yngri. Yngri börnin hafa að jafnaði verið á
Krílalandi og Álfalandi, en á Putalandi eru börnin á
"miðjum aldri". Þess vegna getur komið fyrir að börnin skipti tvisvar
um deild á leikskóladvölinni, en sum fara beint af Álfa- eða
Krílalandi á aðra tveggja eldri deildanna.
|