| Stolt börn við útskrift |
|
|
|
| þriðjudagur, 01 júní 2010 13:20 | |
|
Síðast liðinn föstudag var elsti árgangurinn útskrifaður frá Hagaborg. Börnin mættu prúðbúin í salinn þar sem foreldrar og aðrir aðstandendur biðu spenntir. Fyrst söng hópurinn nokkur lög áður en útskriftin sjálf fór fram. Eftir að hvert og eitt fékk skjal, rós og hatt á höfuðið voru aðstandendum boðið inn á deild í kaffi og meðlæti. Þessi athöfn er ávallt hátíðleg og mátti sjá mörg bros og eitt og eitt tár í augum. Myndir frá athöfinni eru á myndasvæði Fuglalands.
Myndbönd frá söng barnanna má finna hér fyrir neðan.
Hagaborgarvísur
Dagný
|
| 17.09.'10 til 17.09.'10 Starfsdagur |