|
Arfinn reyttur, hoppað og grillað á Hagaborg |
|
|
|
|
fimmtudagur, 27 maí 2010 10:12 |
|
Í gær stóð foreldrafélag Hagaborgar fyrir sumarhreinsunarhátíð. Foreldrar mættu með góða skapið og eitthvað af garðverkfærum. Hver deild fékk úthlutað ákveðnu svæði til að hreinsa. Gaman var að sjá börn og fullorðna taka höndum saman og gera garðinn fínan. Foreldrafélagið bauð upp á hoppukastala og vakti hann geysimikla lukku. Foreldrar komu með pylsur og brauð og voru tveir galvaskir feður sem stóðu við grillið. Hópmyndtaka var af börnum og foreldum og á eftir stjórnaði Svava María fjöldasöng. Veðrið var eins og best varð á kosið og voru allir glaðir og kátir í lok hátíðarinnar. Myndir frá hátíðinni má sjá á myndasvæðinu undir sameiginlegum myndum.
|