Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólastarf
Leikur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

thumb_leikur JogEFrjáls leikur er ein mikilvægasta þroskastund barnanna og er ein gagnbesta leiðin til þekkingar og alhliða þroska. Fjálsi leikurinn mótar æskuna og skapar börnum ókjör möguleika að átta sig á persónu sinni og umhverfinu, fyrir utan að hlú að hugmyndauðgi þeirra, sköpunarkrafti og tjáningu. Í hlutverkaleik ræður ímyndunin ríkjum og í Hagaborg er gengið út frá því að í honum átti barnið sig á grunngildum og lögmálum félagslegrar tilveru. Að endingu skal minnt á að maðurinn hættir ekki að leika sér af því hann verður gamall, heldur verður hann gamall af því hann hættir að leika sér.

 
Útivera Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

thumb_img_1606
Útivsvæðið er svæði hlutverkaleiksins og ímyndunar, ekki síður en hreyfingar. Þar skapst börnum mest frelsi til athafna, sem er ákaflega nauðsynlegt og það er trú okkar að útivist efli hreysti og vellíðan. Á sumrin er mikil útivera og aukin áhersla er lögð á vettvangsferðir. Stundum er nesti gripið með og jafnvel verið burtu lungann úr deginum.

 
Samvera Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

thumb_samveraÁn annarra væri maður harla lítilfjörlegur. Samvera nefnist sú stund sem börn og fullorðinn eiga saman og er þá einatt spjallað, lesið, sungið eða sagðar sögur. Bækur eru ávallt aufúsugestir í Hagaborg og ekki hvað síst vegna þeirrar gleði sem sögur veita, en einnig vegna styrkingar orðaforða og málskilnings. Söngur skapar mikla samkennd og notalega nærveru, en síðast en ekki síst hefur sagnamenning lengi blómstrað í Hagaborg. Víða í starfsmannahópnum leynast botnlausar söguskjóður. Í sagnaheimi sameinast börn og fullorðinn og skapa andartak sem er þeirra og engra annarra.
 

 
Hópastarf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

hopastarfÍ hópastarfinu mótar hver hópur fyrir sig þá leið sem hentar, allt eftir samsetningu hópsins, áhuga og aðstæðum hverju sinni. Hóparnir vinna einnig að sameiginlegu þema og skapar það heildarbrag og sameiginlega reynslu. Hópstundirnar gefa tækifæri til að rækta einbeitingu og hugmyndaflug –um leið og kafað er dýpra í viðfangsefni með hjálp og leiðsögn fullorðinna. Í vinnu smærri hópa gefst hópstjórum tækifæri á að kynnast og fylgjast nánar með hverju barni fyrir sig og átta sig betur á styrk barnsins og persónu.

 
Val Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

thumb_valÍ valstundunum velja börnin leikefni og leiksvæði og stundum leikfélaga. Val barnanna gefur þeim ramma um verkefnin og það lærir smátt og smátt að standa við val sitt og að ekki er alltaf hægt að fá það sem maður vill – það þarf að skiptast á. Val eykur börnunum tilfinningu fyrir sjálfdæmi í leikskólanum og að þau hafi um það að segja hvað skuli aðhafst.

 
Fleiri greinar...
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 2

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
Leikskólinn Hagaborg | Fornhagi 8, 107 Reykjavík | s: 551 0268 / 552 0095 | Póstur | Viðburðir | Fréttir